Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2017 | 08:00

Hver er kylfingurinn Jeunghun Wang?

Jeunghun Wang sigraði á Commercial Bank Qatar Masters nú um helgina nánar tiltekið sunnudaginn 29. janúar 2017, en mótið var mót vikunnar á Evróputúrnum.

Öðru sætinu deildu sænskur frændi okkar Joakim Lagergren og Jaco Van Zyl frá S-Afríku.

Allir voru þessir þrír jafnir eftir 72 holu leik á samtals 16 undir pari, hver, en Wang sigraði síðan á 1. holu bráðabana, en 18. hola Doha GC var spiluð aftur og fékk Wang fugl meðan hinir tveir töpuðu á parinu.

Wang er ekki þekktasti kylfingurinn á heimsvísu í golfinu og margir sem vita fátt annað en að hann sé frá S-Kóreu, ef þá það!

Hver er þessi kylfingur Wang?

Wang er ungur og tiltölulega óþekktur kylfingur en nú þegar kominn með þrjá sigra á Evrópumótaröðinni og geri aðrir betur!!!

Jeunghun Wang  ( 왕정훈 á hangul eða 王情訓 á hanja) er frá S-Kóreu og fæddur 7. september 1995 og því aðeins 21 árs.

Hann spilar aðallega núna á Evróputúrnum og Asíutúrunum en var þar áður á PGA Tour China. Wang gerðist atvinnumaður í golfi 17 ára, árið 2012.

Af sigrum hans sem áhugamanns mætt helst nefna:

2010 Carlubang Amateur Open, YoungIn Univ. President Cup, Sports Chosun Cup (þá er Wang 15 ára)
2011 DHL-WWW Philippine Amateur, Philippine Amateur (Wang 16 ára)

Þrátt fyrir ungan aldur hefir Wang nú þegar sigrað þrívegis á Evróputúrnum; einu sinni á Sólskinstúrnum suður-afríska og 1 sinni á Asíutúrnum.  Eitt mótanna á Evróputúrnum voru annars taldist líka vera mót á Sólskinstúrnum og á Asíutúrnum.

Árið  2016, sigraði Wang Trophée Hassan II mótið en hann fékk leyfi til að spila í mótinu á undanþágu styrktaraðila. Segja má að hann hafi fullnýtt tækifærið og gert gott betur. Hann fékk fugl á 2. holu bráðabana og stal þar með sigrinum af spænska kylfingnum Nacho Elvira.

Vikuna þar á eftir sigraði hann aftur, í þetta skipti á the AfrAsia Bank Mauritius Open, sem var samstarfsmót Evróputúrsins, Asíutúrsins og Sólskinstúrsins. Wang átti 1 högg á Siddikur Rahman.

Vegna beggja sigra sinna á Evróutúrnum og það á nýliðaári sínu! var Wang valinn Henry Cotton nýliði ársins á Evróputúrnum, árið 2016.

Þriðji sigur Wang á Evróputúrnum kom svo sunnudaginn sl. 29. janúar 2017, þegar hann sigraði s.s. áður segir á Commercial Bank Qatar Masters.

Vegna þessa sigurs fór Wang inn á topp-50 heimslistans, situr nú í 39. sætinu en var áður í 60. sæti.  Að öllu óbreyttu ætti hann því að vera búinn að tryggja sér þátttökurétt á Masters risamótið; en hann tók tvívegis þátt í risamótum 2016; Opna breska og PGA Championship og náði ekki niðurskurði í bæði skiptin. Kannski að kominn sé tími á hjá Wang að breyta risamótaferli sínum!

Wang virðist óstöðvandi og hluti nýrrar, sterkrar og frábærrar golfkynslóðar í golfinu, sem gaman verður að fylgjast með!!!