Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Ines Lescudier (30/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Nú erum við að kynna þær óheppnu, sem höfnuðu í 34. sætinu og voru við það að hljóta fullan spilarétt á LET, en leika því miður allar á LET Access og hafa aðeins takmarkaðan spilarétt; þær voru allar á samtals sléttu pari, 360 höggum, hver.

Þetta eru þær: Elina Nummenpaa frá Finnlandi (68 71 72 74, 75) spænski kylfingurinn Silvia Bañon (70 75 71 69 75), franski kylfingurinn Ines Lescudier (69 76 70 72 73) og Charlotte Thompson (79 67 69 72 73) og Meghan Maclaren frá Englandi (73 67 73 75 72); Angella Then frá Bandaríkjunum (75 73 71 69 72) og Nina Muehl ( 72 71 72 69 76)

Elina Nummenpää frá Finnlandi, Nina Muehl frá Austurríki og Silvia Bañon frá Spáni hafa þegar verið kynntar og í dag er það Ines Lesucdier frá Frakklandi.

Ines Lescudier fæddist 22. mars 1992 í Marseille í Frakkland og er því 24 ára. Hún var aðeins 5 ára þegar hún fór í fyrsta golftímann sinn hjá Roger Cotton í golf d’Aix-Marseille. Þegar hún var 10 ára var hún í tímum hjá 2 mismunandi golfkennurum og 12 ára vann hún fyrsta mótið sitt, sem heitir Masters (í dag er nafn mótsins “Tournoi Fédéral Jeune”).

Ines útskrifaðist árið 2015 frá Kennesaw State University í  Georgíuríki í Bandaríkjunum, þar sem hún var í bandaríska háskólagolfinu í 3 ár.(2012-2015)  Hún er með gráðu í íþróttum frá skólanum.

Þar áður var hún í Tulane í Louisiana (2011-2012) og þar áður útskrifaðist hún 2009 frá menntaskólanum sínum í Frakklandi: Lycée Emmanuel Mounier í Châtenay-Malabry, en hún vann í 1 ár áður en hún fór í háskóla.

Fræðast má nánar um Ines og afrek hennar á góðri heimasíðu hennar, sem er bæði á frönsku og ensku SMELLIÐ HÉR: 

Komast má á facebook síðu Ines með því að SMELLA HÉR: