Nýju stúlkurnar á LET 2017: Silvia Bañon (29/66)
Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.
Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.
Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.
Nú erum við að kynna þær óheppnu, sem höfnuðu í 34. sætinu og voru við það að hljóta fullan spilarétt á LET, en leika því miður allar á LET Access og hafa aðeins takmarkaðan spilarétt; þær voru allar á samtals sléttu pari, 360 höggum, hver.
Þetta eru þær: Elina Nummenpaa frá Finnlandi (68 71 72 74, 75) spænski kylfingurinn Silvia Banon (70 75 71 69 75), franski kylfingurinn Ines Lesucdier (69 76 70 72 73) og Charlotte Thompson (79 67 69 72 73) og Meghan Maclaren frá Englandi (73 67 73 75 72); Angella Then frá Bandaríkjunum (75 73 71 69 72) og Nina Muehl ( 72 71 72 69 76)
Elina Nummenpaa frá Finnlandi og Nina Muehl frá Austurríki hafa þegar verið kynnt arog í dag er það Silvia Banon frá Spáni.
Silvia Banon fæddist á Alicante, á Spáni 21. október 1992 og er því 24 ára.
Silvía er 1,76 á hæð.
Hún segir uppáhaldsgolfvöll sinn á Spáni vera Real Golf de Pedreña; uppáhaldsfótboltalið Real Madrid og uppáhaldskylfing sinn vera Severiano Ballesteros.
Silvia gerðist atvinnumaður í golfi 7. september í fyrra, 2016.
Hún segir foreldra sína og þjálfara hafa haft mest áhrif á golfið sitt.
Silvia hefir tekið þátt í 1 LET móti en það var 2016 á Andalucia Costa Del sol Open de Espana Femenino en þar varð hún T-78.
Helstu áhugamál Silvíu utan golfsins eru lestur góðra bóka, kærastinn og nýjasta tíska.
Þetta er í fyrsta sinn sem Silvia tekur þátt í lokaúrtökumóti LET og hún er þegar komin með fullan spilarétt og kortið sitt!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
