Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2017 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Mike Hill ————- 27. janúar 2017

Afmæliskylfingur dagsins er Mike Hill. Mike er fæddur 27. janúar 1939 í Jackson, Michigan og á því 78 ára afmæli í dag. Hann var í Arizona State University og gerðist atvinnumaður árið 1967. Hann átti ágætis feril á PGA Tour, þar sem hann vann þrívegis. Stærsti árangur á lífsferli hans í golfinu kom þó eftir 50 ára aldrinum þegar hann sigraði 18 sinnum á the Senior PGA Tour (nú Champions Tour) og var m.a. á toppi peningalista Seniors Tour 1991. Mike er bróðir þekktari Hill-bróðursins, Dave Hill (f. 20. maí 1937-d. 27. september 2011).

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Albert Woody Austin II, 27. janúar 1964 (53 ára); Dagmar Sigurðardóttir, 27. janúar 1967 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Jonathan Currie Byrd, 27. janúar 1978 (39 ára); Bryce Molder, 27. janúar 1979 (38 ára) ….. og….. Saumakona Handcrafts

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is