Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Celine Borge (25/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Nú erum við að kynna þær sem höfnuðu í 42. sætinu; allar á samtals 2 yfir pari, 362 höggum, hver.

Þetta eru þær: Sharmila Nicollet frá Indlandi, enski kylfingurinn Amber Ratcliffe, franski kylfingurinn Emilie Alonso og Anäis Maggetti frá Sviss sem þegar hafa verið kynntar og Celine Borge frá Noregi.

Celine Borge frá Noregi verður því kynnt í dag.

Celine Borge fæddist 5. ágúst 1998 og er því 18 ára.

Hún er með þeim yngstu sem hlutu keppnisrétt á LET að þessu sinni og þótt aðeins takmarkaður sé er þetta glæsilegt hjá Celine, sem nú verður aðallega að spila á LET Access keppnistímabilið 2017 og öðlast dýrmæta reynslu.