Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA: Madeleine Sheils (34/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Nú hafa þær stúlkur verið kynntar sem rétt sluppu inn á LPGA og eru með takmarkaðan keppnisrétt 2017.

Nú næst verða þær óheppnu kynntar, sem deildu 21. sætinu, en það voru 3 stúlkur sem allar léku á samtals 3 undir pari, 357 höggum, en hjá þeim munaði aðeins 1 höggi að þær hlytu fullan keppnisrétt á LPGA.

Þetta voru þær Madeleine Sheils (70 73 70 73 71); Mariah Stackhouse (72 71 72 70 72) báðar frá Bandaríkjunum og Dottie Ardina frá Filippseyjum.

Dottie og Mariah hafa þegar verið kynntar og nú á aðeins eftir að kynna Madeleine Sheils, en allar voru þær 3 svo grátlega nálægt að fá fullan spilarétt á LPGA; munaði aðeins 1 höggi!

Madeleine Sheils í búningi UNL

Madeleine Sheils í skólakeppnisbúningi UNL

Madeleine Sheils fæddist í Boise, Idaho 29. september árið 1989 og er því 27 ára.. Hún á eina eldri systur, Natalie. Foreldrar Madeleine, Max og Joni, kenndu henni golf 5 ára og hún spilaði vikulega í golfmótum golfsambands Idaho þegar hún var 8 ára. Fyrir utan að hrúga upp Idaho State Junior Champion verðlaunabikurum og leiða menntaskólalið sitt í Bishop Kelly High School til sigurs 4 ár í röð þá vann hún the Big „I“ National Insurance Junior Classic árið 2007.

Madeleine spilaði með golfliði The University of Nebraska á árunum  2008-2012. Sjá má um afrek Sheils í háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:

Madeleine útskrifaðist í desember 2012 með BA gráðu í sálfræði og viðskiptafræði.

Árið 2013 var Madeleine komin á Symetra Tour og þar mun hún spila 1 ár enn, því ekki tókst að öðlast fullan keppnisrétt á LPGA í þetta sinn. Aðeins munaði 1 höggi eins og áður er komið fram. 🙁

Verðlaun sem Madeleine hafa hlotnast (óþýtt – látið standa á ensku):
University of Nebraska Athletic Accomplishments
No. 2 Career Stroke Average in School History (76.88, 2009-2012)
No. 3 Season Stroke Average in School History (74.67, 2012)
NCAA Central Regional Individual Qualifier
First-Team All-Big Ten (2012); Big Ten All-Tournament Team (2012)
Two-Time Big Ten Golfer of the Week (Fall 2011)
One Career Individual Title (2011 Edean Ihlanfeldt Invitational); Final Round 67 at Sahalee CC Tied Annika Sorenstam’s Course

Met sem Madeleine á: 
11 Career Top 10 Finishes (6 in 2011-2012); 18 Career Top 25 Finishes
Individual Score Counted Towards Team Score in 100% of Rounds in 2011-2012
2012 Nebraska Female Student Athlete of the Year Award Finalist

Afrek Madeleine innan Nebraska ríkis og á sambandsríkjastigi: 
Advanced to the round of 16 at US Women’s Amateur (2012); advanced to the round of 64 at US Women’s Amateur (2011)
Runner-up at the Judson Collegiate Invitational (2012)
Two-Time Idaho Women’s Amateur Champion (2009, 2012); Idaho Women’s Match-Play Champion (2010)
Match Play Quarter finalist at the Women’s Trans National Championship (2011)
Collegiate Players Tour Event Champion (2011)
Achieved 4 Hole-in-Ones between July 2011 and July 2012
Big „I“ Insurance Junior Classic National Champion (2007)

Sjá má á facebook síðu Madeleine með því að SMELLA HÉR: