Nýju stúlkurnar á LPGA: Bronte Law (31/54)
Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.
155 þátttakendur voru að þessu sinni.
Nú hafa 28 stúlkur verið kynntar sem rétt sluppu inn á LPGA og eru með takmarkaðan keppnisrétt 2017.
Nú næst verða þær sem deildu 24. sætinu, en það voru 3 stúlkur sem allar léku á samtals 2 undir pari, 358 höggum: áhugamaðurinn Bronte Law (75 68 73 70 72); Aditi Ashok frá Indlandi (73 70 71 71 73) og hin danska Nicole Broch Larsen (69 78 66 69 76).
Bara á eftir að kynna Bronte Law og verður hún kynnt í kvöld.
Bronte Law fæddist í Stockport, Englandi 12. mars 1995 og er því 21 árs.
Law spilaði fyrir lið Breta&Íra 2012 (í sigurliði) 2014 (í sigurliði) og 2016 í Curtis Cup. Árið 2016 varð hún 2. kylfingurinn og sá 1. frá Bretlandi til þess að vinna alla leiki sína í þeirri keppni, var með fullt hús eða 5–0.
Önnur mót sem Law hefir tekið þátt í, sem áhugamaður:
Junior Ryder Cup (fulltrúi Evrópu): 2012
Vagliano Trophy (í liði Breta&Íra): 2013, 2015
Junior Solheim Cup (lið Evrópu): 2013
Espirito Santo Trophy (fyrir England): 2014
Í fyrra, 2016 sigraði Law á European Ladies Amateur Championship og komst þannig í 2. sæti á heimslista áhugamanna (ens.: World Amateur Golf Ranking).
Þrátt fyrir ungan aldur hefir Law þegar tekið þátt í 3 risamótum kvennagolfsins: Ana Inspiration, Evian Championship og Women´s British Open en í því síðastnefnda, sem hún tók þátt í 2012 (16 ára) varð hún T-33, sem er besti árangur hennar, en í hinum tveimur risamótunum komst hún ekki gegnum niðurskurð.
Law gerðist atvinnumaður í golfi 2016.
Hún er komin með fullan keppnisrétt í 2. deild bandaríska kvennagolfsins, Symetra Tour og með takmarkaðan spilarétt á LPGA Tour keppnistímabilið 2017.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
