Þórður Rafn
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2017 | 21:00

Pro Golf Tour: Þórður Rafn T-6 e. 1. dag á Red Sea Egyptian Classic

Þórður Rafn Gissuarson, atvinnukylfingur úr GR, lék fyrsta hring á Red Sea Egyptian Classic mótinu í dag, en mótið er hluti af Pro Golf Tour, mótaröðinni þýsku.

Mótið fer að venju fram í Ain Sokhna í Egyptalandi.

Þórður Rafn lék fyrsta hringinn á 3 undir pari, 69 höggum og er T-6 í mótinu eftir 1. dag.

Hann fékk 6 fugla 1 skolla og 1 skramba á hringnum í dag.

Sjá má stöðuna á Red Sea Egyptian Classic mótinu með því að SMELLA HÉR: