Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2017 | 07:00

Rory frá keppni vegna meiðsla

Rory McIlroy hefir dregið sig úr keppni í Abu Dhabi HSBC Championship, í þessari viku eftir að í ljós komu meiðsli á rifbeinum hjá honum eftir röntgenmyndatökur.

Í raun ætlaði Rory ekkert að taka þátt í BMW SA Open, þar sem hann var farinn að finna fyrir verkjum og þreytu en barðist í gegnum mótið á verkjalyfjum, þar sem hann beið loks í lægra haldi fyrir Graeme Storm í bráðabana en krækti sér þó í 2. sætið.

Ekkert er vitað hvenær Rory snýr aftur til keppni á þessari stundu en Rory er mjög leiður að geta ekki keppt.

Í fréttatilkynningu frá honum sagði m.a.: „Ég hugsa að alliar viti hversu mikið ég elska að spila í þssu móti sem er eitt af því besta á Evrópumótaröðinni þökk sé útrúlegum stuðningi HSBC og íþróttaráði Abu Dhabi.“

„Að neyðast til þess að missa af mótinu vegna meiðsla er mjög pirrandi ef ég á að vera algerlega hreinskilinn, en ég er viss um að mótið verður frábært og ég vona að allir sem taka þátt eigi gríðargóða viku.„

„Í aðstæðum eins og þessum verður maður einfaldlega að hlusta á sérfræðingana og sérfræðingsteymið sem ég hef ráðfært mig við hefir ráðlagt mér að hvílast það til rifbeinið hefir fullkomlega náð sér.“