Nýju stúlkurnar á LPGA: Emily Tubert (25/54)
Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.
155 þátttakendur voru að þessu sinni.
Nú hafa 20 stúlkur verið kynntar sem rétt sluppu inn á LPGA og eru með takmarkaðan keppnisrétt 2017.
Í gær var byrjað að kynna þær sem voru jafnar í 29. sæti en það eru: Jenny Coleman; Emily Tubert; Brittany Benvenuto; Daniela Darquea; Mina Harigae og Lauren Kim.
Þær léku allar á samtals sléttu pari, 360 höggum.
Mina Harigae, Lauren Kim, Daniela Darquea og Brittany Benvenuto hafa þegar verið kynntar, en í kvöld verður Emily Tubert kynnt.
Emily Tubert fæddist 15. maí 1992 í Burbank, Kaliforníu og er því 24 ára.
Hún byrjaði að spila golf 13 ára. Meðal áhugamála Emily er að vera í ræktinni, næringafræði, verja tíma með fjölskyldu og vinum, matreiðsla og stangveiði.
Árið 2015 spilaði Tubert á Symetra Tour, en það var nýliðaár hennar á mótaröðinni – tók þátt í 19 mótum og komst gegnum niðurskurð í 16 þeirra. Þar af átti hún einn topp-10 árangur, þ.e. varð T-8 á Chico’s Patty Berg Memorial.
Hápunktar á ferli Emily eru annars eftirfarandi:
Hún varð meistari á U.S. Women’s Amateur Public Links, (2010)
Hún varð þrívegis Collegiate All-American (2011, 2012, 2013)
Var í liði Bandaríkjanna í Curtis Cup (2012)
Tók þátt í U.S. Women’s Open risamótinu (2013)
LPGA Qualifying Tournament Stage I sigurvegari (2014)
Sigraði á Arizona Women’s Open (2014)
Tók þátt í Big Break Myrtle Beach
Komast má á facebook síðu Emily með því að SMELLA HÉR:
Nú er Tubert komin með takmarkaðan spilarétt á LPGA, bestu kvenmótaröð heims.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
