Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Elizabeth Mallett (15/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Það voru 7 stúlkur sem höfnuði í 51. sæti allar á samtals 4 yfir pari, 364 höggum, en þetta eru þær: María Beautell; Marie Fourquier,Julie Maisongrosse, Elizabeth Mallett; Jessica Bradley, Francesca Cuturi og Sideri Vanova.

María Beautell frá Spáni, Julie Maisongrosse og Marie Fourquier frá Frakkland,  Francesca Cuturi frá S-Afríku og Sideri Vanova frá Tékklandi hafa þegar verið kynntar og í dag verður Elizabeth Mallett kynnt.

Elizabeth Mallett fæddist 1994 og er því 23 ára.

Hún býr í Sutton Coldfield í Englandi.

Elizabeth spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði University of North Carolina  – Til þess að sjá afrek Elizabeth í bandaríska háskólagolfinu SMELLIÐ HÉR. 

Sjá má facebook síðu Mallett með því að SMELLA HÉR: 

Hún er nú komin með takmarkaðan spilarétt á LET eftir að hafa orðið T-51 í Lalla Aicha Tour School.