Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA: Jessy Tang (19/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Í dag verður fram haldið við að kynna þær sem voru jafnar í 35. sæti en það eru: Britney Yada; Jessy Tang;  Katelyn Dambaugh. Prima Thammaraks og Min-G Kim.

Þær léku allar á samtals 1 yfir pari, 361 höggi.

Í dag verður Jessy Tang kynnt en Katelyn Dambaugh, Prima Thammaraks og Min-G Kim hafa þegar verið kynntar.

Jessy Tang er bandarísk fæddist í Miami Flórída en ólst upp í Thaílandi og talar reiprennandi 3 tungumál: ensku, tælensku og mandarín.

Tang byrjaði að spila golf 10 ára.

Þegar hún er ekki á golfvellinum líkar henni við að lesa, horfa á aðrar íþróttir auk þess sem henni finnst gaman að listum.

Meðal afreka hennar sem áhugamanns er eftirfarandi:
Hún vann 3 unglingamót í Bandaríkjunum (AJGA, FJT, IJGT).
Hún sigraði 2007 á Thailand Amateur Ladies Golf Association Championship.
Hún var 4 sinnum meðal efstu 20 í einstaklingskeppni meðan hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði University of Central Florida.
Hún varð T-11 á 2008 Conference USA Championship.
Tang er  Orange County leikmaður ársins.
Hún var valin í 2008 Conference USA Second-Team.
Árið 2008 var hún valin nýliði ársins.

Árið 2009 gerðist Tang atvinnumaður í golfi.

Árin 2012-2015 hefir Tang spilað á Symetra Tour, en nú er hún einnig komin með takmarkaðan spilarétt á LPGA keppnistímabilið 2017.

Sjá má facebook síðu Tang með því að SMELLA HÉR: