Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Hana Wakimoto (9/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Það voru fjórar sem deildu 58. sætinu en það eru: Hana Wakimoto, Astrid Vayson de Pradenne, Jenny Lee og Lejan Lewthwaite.

Þær allrar léku á 5 yfir pari, 365 höggum.  Allar nema Hana hafa verið kynntar og verður hún nú kynnt í dag.

Hana Wakimoto fæddist í Japan og er einn af táningunum, sem komin er með takmarkaðan spilarétt á LET keppnistímabilið 2017.

Hún býr í Kobayashi, Miyazaki í Japan.

Komast má á facebook síðu Hönu Wakimoto til þess að fræðast nánar um hana með því að SMELLA HÉR: