Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 8. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Katelyn Dambaugh (18/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Í dag verður fram haldið við að kynna þær sem voru jafnar í 35. sæti en það eru: Britney Yada; Jessy Tang; og Katelyn Dambaugh. Prima Thammaraks og Min-G Kim hafa þegar verið kynntar.

Þær léku allar á samtals 1 yfir pari, 361 höggi.

Í dag verður Katelyn Dambaugh kynnt

Katelyn Alyse Dambaugh fæddist 1. október 1994 og á því sama afmælisdag og Þórdís Geirs, þó hún viti það eflaust ekki.

Katelyn er 22 ára, dóttir Eric og Cindy Dambaugh.og hún á eina systur, Brooke.  Frændi hennar Allen Kinard spilaði hafnarbolta með the Pittsburgh Pirates og frændi hennar Gary Kinard lék hafnarbolta með Philadelphia Phillies

Katelyn er frá smábæ í Suður-Karólínu sem nefnist Goose Creek og hún var í spilaði í bandaríska háskólagolfinu með Háskóla Suður Karólínu (lið hennar þar: South Carolina Gamecocks).

Sjá má afrek Katelyn í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR: 

Katelyn útskrifaðist frá Suður-Karólínu háskóla 2016 og er þegar komin með takmarkaðan spilarétt á LPGA, í fyrstu tilraun sinni við lokaúrtökumótið.