Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 7. 2017 | 17:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Jenny Lee (7/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Næst verða kynntar þær fjórar sem deildu 58. sætinu en það eru: Hana Wakimoto, Astrid Vayson de Pradenne, Jenny Lee og Lejan Lewthwaite.

Þær allrar léku á 5 yfir pari, 365 höggum.

Lejan Lewthwaite hefir nú þegar verið kynnt og í dag er það Jenny Lee.

Jenny Lee fæddist 16. janúar 1996 í S-Kóreu og er því 20 ára.

Hún gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 2 árum þ.e. 2015.

Jenny býr í New South Wales í Ástralíu og hefir spilað á ALPG.

Heimavöllur Jenny í Ástralíu er Concord Golf Club.

Hún segir að foreldrar hennar og þjálfarinn hennar Gareth Jones hafi haft mest áhrif á feril hennar.

Hún segir að meðal áhugamála hennar séu að vera með vinum sínum og vera í íþróttum.

Meðal helstu afreka Jenny í golfinu er eftirfarandi:

2015
Á vallarmetið á The Grange GC á -5
Jenny var fyrirliði South Australia Women’s Interstate
Var í Astar Trophy sigurliðinu
2014
World Junior Girls Team
Klúbbmeistari Glenelg Golf Club Women’s Club
Komst í undanúrslit í Australian Women’s Amateur
2013
Varð í 2. sæti í Australian Women’s Amateur
Engin dagsetning:
Lake Macquarie Amateur Champion