Bjarki Pétursson, GB. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2017 | 18:00

Bjarki lauk keppni T-8 á Orlando Int. Amateur

Þrír íslenskir kylfingar Bjarki Pétursson, GB; Fannar Ingi Steingrímsson og Hákon Örn Magnússon, GR tóku þátt í Orlando International Amateur mótinu, sem fram fór í Flórída, dagana 28.-30. desember s.l.

Fannar Ingi og Hákon Örn náðu ekki gegnum niðurskurð en Bjarki landaði 8. sætinu, sem hann deildi með 3 öðrum kylfingum.

Bjarki lék á samtals 1 yfir pari, 217 höggum (69 73 75).

Glæsilegur árangur þetta hjá Bjarka, en þátttakendur í mótinu voru 102 og komust 46 efstu í gegnum niðurskurð.

Til þess að sjá lokastöðuna á Orlando International Amateur mótinu SMELLIÐ HÉR: