Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2017 | 14:00

Hótel Örk hlýtur alþjóðagolfverðlaun

Á sunnlenska.is er eftirfarandi frétt:

„Hótel Örk Hveragerði hefur hlotið alþjóðleg verðlaun frá World Golf Awards en hótelið sigraði í flokknum Besta golfhótel Íslands 2014.

Við hjá Hótel Örk erum stolt af þessum verðlaunum enda höfum við í gegnum tíðina lagt mikla áherslu á að bjóða kylfinga velkomna á hótelið og æfa sig á níu holu golfvellinum við hótelið áður en haldið er á þá fjölmörgu glæsilegu golfvelli sem eru í nágrenni Hótel Arkar á Suðurlandi,“ segir Geir Gígja, sölu- og markaðsstjóri Hótel Arkar.

World Golf Awards voru nú veitt í fyrsta skipti en World Golf Awards eru hluti af World Travel Awards sem hafa verið veitt í 21 ár. Ferlið er þannig að fyrst eru valin nokkur fyrirtæki eða golfvellir í hverjum flokki í hverju landi. Því næst kjósa fagmenn í golfheiminum og ferðaþjónustu og aðrir neytendur á vefsíðu samtakanna.

Metfjöldi atkvæða barst í kosningunum frá leiðandi fagmönnum ásamt neytendum í yfir eitthundrað löndum. Hótel Örk var einnig tilnefnt í flokknum Besta golfhótel Evrópu.

Verðlaunaafhendingin fór fram á hinu glæsilega Hótel Conrad Algerve í Portúgal þar sem mörg þekkt nöfn úr golf heiminum voru verðlaunuð. Þar má helst nefna Peter Alliss sem fékk sérstök heiðursverðlaun fyrir þjónustu við golfheiminn ásamt Paul McGinley, fyrirliða Evrópu í Ryder Cup, sem var útnefndur Golfpersóna ársins.“

Heimild: sunnlenska.is

Ofangreind frétt birtist 12. janúar í fyrra, en í ár hefir Hótel Örk ekki gert endasleppt og er enn á ný valið „Besta golfhótel Íslands 2016.“ Sjá neðangreint verðlaunaskjal. Þetta er því í 2. skiptið með stuttu millibili sem Hótel Örk er valið besta golfhótel Íslands.

Verðlaunaskjal til handa Hótel Örk 2016

Verðlaunaskjal til handa Hótel Örk 2016