Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 1. 2017 | 19:00

PGA: Day verður m/ á 1. móti ársins 2017 á Hawaii

Nr. 1 á heimslistanum Jason Day mun ljúka fjarveru sinni frá keppnisgolfi með því að taka þátt í Tournament of Champions (TOC) á Hawaii í þessari viku.

Hinn 29 ára Ástrali hefur verið frá í 3 1/2 mánuð og verið hrjáður af vöðvakippum í baki, en hann mun ásamt Jordan Spieth, Hideki Matsuyama, Bubba Watson og fleiri stórstjörnum taka þátt í móti sigurvegara á PGA mótum 2016.

Day er í toppsæti heimslistans, en á hæla hans eru engir minni kylfingar en Rory McIlroy og Dustin Johnson og auðvitað vonast Day eftir að hefja árið 2017 á réttum nótum, eftir að hafa verið frá keppni eftir Tour Championship þ.e. frá því seint í september.

Day sleppti stórum mótum í heimalandi sínu til þess að koma heilsu sinni í lag – og hann mun væntanlega leitast við að bæta árangur sinn, en á síðasta ári varð hann í 10. sæti á TOC og Jordan Spieth vann.

Landar Day,  Aaron Baddeley, Rod Pampling og Greg Chalmers munu einnig keppa á Hawaii, en keppni hefst á Plantation vellinum á Kapalua nk. fimmtudag.