Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Rickie Fowler og Finnbogi Steingrímsson – 13. desember 2016

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir annars vegar Finnbogi Steingrímsson og hins vegar Rickie Fowler. Finnbogi er fæddur 13. desember 2001 og á því 15 ára afmæli í dag. Hann er afrekskylfingur í GM, sonur hjónanna Steingríms Walterssonar og Elínar Rós Finnbogadóttur. Komast má hér að neðan á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið!!!

Finnbogi Steingrímsson

Finnbogi Steingrímsson

Finnbogi Steingrímsson 15 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Rickie Fowler

Rickie Fowler

Rickie Fowler er fæddur 13. desember 1988 í Murrieta, Kaliforníu og á því 28 ára afmæli í dag. Fowler spilar á bandaríska PGA og vann einmitt sinn fyrsta sigur á mótaröðinni, 6. maí 2012, þegar hann sigraði þá DA Points og Rory McIlroy í umspili á Wells Fargo Championship.

Fowler er m.a. frægur fyrir að vera í Golf Boys bandinu, sem átti gríðarlega vinsælt lag Oh, Oh, Oh, sem hlusta má á með því að SMELLA HÉR:

Í ár sigraði Rickie 24. janúar 2016 á Abu Dhabi HSBC Golf Championship.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jackie Pung frá Hawaii, f. 13. desember 1921 – d. 15. mars 2017; Thomas G. Shaw, f. 13. desember 1938 (78 ára); Lotta Wahlin, 13. desember 1983 (33 árs); Sakura Yokomine (横峯さくら f. 13. desember 1985 (31 árs)); Sun Young Yoo (유선영) 13. desember 1986 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!); Matt Atkins, 13. desember 1990 (26 ára);  Curtis Thompson, (bróðir Lexi), 13. desember 1992 (24 ára) …. og ….. Skæs Skart (50 ára STÓRAFMÆLI!!!)

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is