Jóhann fékk málverk að gjöf frá klúbbnum fyrir vel unnin störf í þágu GKB í 11 ár. Mynd: GKB
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2016 | 14:44

GKB: Jóhann Friðbjörnsson hættir sem formaður

Aðalfundur Golfklúbbs Kiðjabergs var haldinn laugardaginn 10. desember, í golfskálanum Kiðjabergi. Á fundinn mættu yfir 60 félagar. Jóhann Friðbjörnsson hætti sem formaður GKB eftir 11 ár í starfi. Í hans stað var kosinn Þórhalli Einarsson.

Jóhann Friðbjörnsson formaður flutti skýrslu fráfarandi stjórnar. Rekstur klúbbsins gekk sæmilega, þó svo að heldur færri hringir hafi verið spilaðir á vellinum en árið á undan. Magnús Þ. Haraldsson fór yfir reikninga klúbbsins á aðalfundinum. Tekjur voru rúmar 53 milljónir króna, sem er svipuð tala og síðasta ár. Hagnaður af rekstri var 5,6 milljónir fyrir afskriftir og fjármagnsliði.

Jónas Kristinsson er meðstjórnandi og kemur nýr inn í stjórn í stað Þórhalla sem tekur við sem formaður. Aðrir í stjórn eru Gunnar Þorláksson, meðstjórnandi, Magnús Þ. Haraldsson, meðstjórnandi og Brynhildur Sigursteinsdóttir meðstjórnandi, sem kemur ný inn fyrir Snorra Hjaltason.

Varamenn í stjórn eru:
Ágúst Friðgeirsson og Börkur Arnviðarson.

Tillaga stjórnar að félagsgjöldum 2017 var samþykkt. Ákveðið var að hækka ekki félagsgjöld til 25 ára og yngri og til þeirra sem eru í námi lánshæfu samkvæmt LÍ. Gjalddagi árgjalda er 15. janúar og 15. febrúar 2016.

Verðskrá:
Hjónagjald: 140.000.
Fjölskyldugjald, sem g:ildir fyrir hjón + börn og eða barnabörn að 16 ára aldri: 145.000.
Einstaklingsgjald: 78.000.
Hjón 67 ára og eldri: 125.000.
Einstaklingar 67 ára eða eldri: 65.000.
Hjón þar sem annar aðili er 67 ára eða eldri: 133.000.
Þeir sem eru 25 ára og yngri: 25.000.
Þeir sem eru í námi lánshæfu samkvæmt LÍ: 40.000.
Golfbílagjald: 20.000.

Innifalið í félagsgjöldum er 50% afsláttur af vallargjaldi fyrir gesti, eingöngu í fylgd með félagsmanni, virka daga, gildir 8 skipti. Fjaraðild án spilaréttar á vellinum, en þó innifalið einn hringur án endurgjalds, kr. 20.000. GSÍ aðild og aðgangur að golf.is. Innifalið í fjölskyldugjaldi er: hjón + börn eða barnabörn að 16 ára aldri.

Jóhann tekur hér í höndina á nýjum formanni og óskar honum góðs gengis.

Jóhann tekur hér í höndina á nýjum formanni og óskar honum góðs gengis. Mynd: GKB

Heimild: Vefsíða GKB