Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Alejandra Llaneza (5/54)
Þann 30. nóvember – 4. desember fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.
155 þátttakendur voru að þessu sinni.
11 stúlkur voru jafnar í 44. sæti og hljóta allar takmarkaðan spilarétt. Þetta voru þær: Brianna Do, Augusta James, Emily Collins, Caroline Inglis, Allyssa Ferrell, Haeji Kang, Benyapa Niphatsophon, Alejandra Llaneza, Hannah Burke, Celine Boutier og Krista Puisite.
Allar léku þær á 3 undir pari, 363 höggum.
Brianna Do, Celine Boutier, Hannah Burke og Krista Puisite hafa þegar verið kynntar til sögunnar og í dag verður Alejandra Llaneza kynnt.

Alejandra Llaneza er stórglæsileg
Alejandra Llaneza fæddist í Mexíkó 31. maí 1988 og er því 28 ára. Hún er dóttir Jorge Llaneza og Ma. Concepcion Llaneza.
Alejandra byrjaði í golfi 6 ára.
Sveifluþjálfi hennar er Rafael Alarcon, sem einnig þjálfaði Lorenu Ochoa. Meðal áhugamála Alejöndru er að spila fótbolta, tennis og að fara í bíó með vinum. Alejandra var í háskólanum í Arizona og spilaði með golfliðinu þar í 4 ár.

Alejandra Llaneza
Hápunktar á ferli Alejöndru eru eftirfarandi:
– Hún er fimmfaldur unglingameistari í golfi í Mexíkó.
– Hún varð í 3. sæti í Callaway Junior World Championship.
– Hún sigraði í Optimist International, árið 2006.
– Alejandra er í mexíkanska landsliðinu og tók þátt í World Amateur Golf Team Championships, árið 2008.
– Alejandra varð í 2. sæti í Canadian Amateur, árið 2008.
– Hún varð í 2. sæti í Dr. Donnis Thompson tournament, 2011 meðan hún var enn í University of Arizona.
– Árið 2008 var Alejandra tilnefnd til Pacific 10 Conference Honorable Mention.
– Alejandra sigraði á móti, sem haldið var í Wigwam, á Cactus Tour, árið 2011
Árin 2012-2014 spilaði Alejandra á Symetra Tour, sem er 2. deildin í kvennagolfinu í Bandaríkjunum. Þar varð hún 8 sinnum meðal efstu 10 í mótum sem hún tók þátt í. Árið 2015 sigraði hún í móti á Symetra Tour en það var í 2015 Self Regional Healthcare Foundation Women’s Health Charity Classic mótinu.
Besti árangur Alejöndru í risamótum kvennagolfsins er T-12 árangur í Kingsmill risamótinu árið 2014.
Árið 2016 keppti Alejandra f.h. Mexíkó í golfi á Ólympíuleikunum. Og nú 2016 er Alejandra komin með takmarkaðan spilarétt á sjálfri LPGA-mótaröðinni, þó hún hafi fyrst komist á mótaröðina, fyrir 3 árum, þ.e. árið 2013.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
