Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 11. 2016 | 05:00

LET: Aditi Ashok valin nýliði ársins 2016

Aditi Ashok hlaut Omega úrið sitt sem nýliði ársins á LET.

Aditi Ashok ánægð með nýliða ársins titilinn á LET með Omega úrið sem fylgir titlinum. Hún er búin að vera frábær 2016! Mynd: Tristan Jones

Aditi Ashok ánægð með „nýliða ársins á LET titilinn“  með Omega úrið sem fylgir titlinum. Hún er búin að vera frábær 2016! Mynd: Tristan Jones

Hin 18 ára Aditi Ashok frá Bangalore á Indlandi sigraði m.a. tvívegis í röð á LET nú á árinu þ.e. á Hero Women’s Indian Open og var fulltrúi Indverja á Ólympíuleikunum í Ríó 2016.

Á lokamóti LET á árinu 2016, sem lauk í gær varð Aditi í 3. sæti ásamt Florentynu Parker frá Englandi. Allt í allt varð hún í 2. sæti á stigalista LET.  Glæsilegur árangur þetta hjá nýliða ársins á LET!!!

Aditi tók líkt og Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir  þátt í lokaúrtökumóti LPGA – en hlaut aðeins takmarkaðan spilarétt á LPGA.

Hin nýja golfstjarna sagði eftir að hafa hlotið titilinn „Nýliði ársins“: „Augljóslega hlýt ég mikla athygli, sérstaklega eftir Ólympíuleikana. Mikið af fólki vill skrifa um mig vegna þess að ég var á Ólympíuleikunum og ekki aðeins út af kvennagolfinu. Að þessu leyti held ég að golf sé að verða vinsælla á Indlandi. Mér finnst það gott og ég reyni bara að takast á við þetta (athyglina) eins vel og ég get.

Jafnvel fyrir Ólympíuleikana var ég að spila í LET mótum og mér gekk ágætlega en það vakti ekki áhuga á þeim tíma. En augljóslega eftir að ég spilaði á Ólympíuleikunum vildu allir vita hvað ég var að gera vegna þess að „Ólympíufarinn sem var í forystu eftir 2 daga er nú að spila hér.“ Ég held að það hafa skipt sköpum og vonandi heldur áhuginn áfram að vaxa ekki aðeins á mér heldur á öllum kvenkylfingum í Indlandi.“

Aditi hlakkar nú bara til að taka sér frí áður en hún snýr aftur til keppni 2017. Hún bætti við: „Ég hef verið að spila í fullt af mótum og hef verið að spila vel í þeim öllum. Ég hugsa að það sé það sem hjálpar mér áfram. Eftir það fæ ég frí þannig að það er gott. Ég hlakka bara til að fara heim. Verja 3-4- vikum heima og æfa. Ég fæ líka nýjan dræver og 3-tré úr nýju 917 línunni, þannig að ég hlakka til að æfa með nýju kylfunum.“