Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2016 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA: Celine Boutier (3/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

11 stúlkur voru jafnar í 44. sæti og hljóta allar takmarkaðan spilarétt. Þetta voru þær: Brianna Do, Augusta James, Emily Collins, Caroline Inglis, Allyssa Ferrell, Haeji Kang, Benyapa Niphatsophon, Alejandra Llaneza, Hannah Burke, Celine Boutier og Krista Puisite.

Allar léku þær á 3 undir pari, 363 höggum.

Brianna Do og Krista Puisite hafa þegar verið kynntar til sögunnar og í dag verður Celine Boutier kynnt.

Celine Boutier

Celine Boutier

Celine Boutier fæddist  10. nóvember 1993 í Clamart, Frakklandi og er því nýorðin 23 ára. Það sem hún veit líklegast ekki er að hún á sama afmælisdag og Andri Þór Björnsson, GR og Sigmundur Einar Másson, GKG.

Hún er dóttir Jacqueline og Christophe Boutier og á eina systur Christie (21 árs), og bróður, Kevin (18 ára).

Boutier spilaði í bandaríska háskólgolfinu (2012-2016) með liði Duke (The Blue Devils) þar sem hún var einnig framúrskarandi námsmaður (sbr. að hún var four-time member of the ACC Honor Roll).

Í Duke var aðalvalgrein hennar sálfræði og undirgreinin hagfræði og eins er Boutier með gráðu í markaðs og stjórnunarfræðum (ens. has a markets and management certificate).

Sjá má afrek Boutier í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR: 

Sem segir útskrifaðist Boutier nú í sumar úr háskóla og er þegar í fyrstu tilraun sinni komin á LPGA, þó aðeins með takmarkaðan spilarétt.