Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2016 | 13:15

Snigill veldur því að umsókn Trump um að byggja vegg er hafnað!

Þið hafið heyrt þetta allt saman áður – hinn nýkjörni forseti Bandaríkjanna Donald Trump vill byggja vegg.

Þessum vegg, sem hann sótti um að byggja, er þó ekki ætlað að rísa milli Mexíkó og Bandaríkjanna – né mun verða borgað fyrir hann af andstöðuflokknum, vegna þess að í þessu tilviki er andstæðingurinn hafið.

Trump, 70 ára, sótti um nú s.l. maí að fá að byggja varnarvegg um lúxusgolfstað sinn í Doonbeg á Írlandi.

Þessum vegg var ætlað að vernda golfstaðinn frá hækkandi sjávastöðu og sjávarofi vegna hækkandi sjávarstöðu vegna hlýnun loftslags á jörðinni. (Ekki fara að hlægja).

Trump afneitaði hreinlega að hlýnun loftslags á jörðinni (global warning) væri vandamál og sagði það vera vandamál Kínverja, en þau orð lét hann falla í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum.

Bæjarráð írska bæjarins Doonbeg hafnaði beiðni Trump um byggingu veggsins vegna snigils nánar tiltekið Vertigo Anguistior, sem verndaður er af reglum Evrópusambandsins.

Snigillinn Vertigo Anguistior verndaður af reglum ESB

Stækkuð mynd af Sniglinum Vertigo Anguistior sem verndaður er af reglum ESB

Var sagt í rökstuðningi fyrir synjuninni að veggur Trumps myndi valda eyðileggingu á búsvæði hins 2 millimetra langa snigils og því var beiðni Trump hafnað.

„Ég hef ekki tíma og sjórinn er stöðugt á vellinum,“ sagði framkvæmdastjóri golfklúbbsins  Joe Russell  í viðtali við Irish Times.

„Við verðum að fá mun fljótlegri lausn til þess að vernda golfholurnar sem eru í hættu.“

Teymi Trump hefir sótt að nýju um byggingu breytts veggjar, sem ekki er jafnhár og fyrri tillaga gekk út á.

Gaman að fylgjast með hvernig nefndarmenn í bæjarráði Doonbeg taka næst á málinu!