GA: Tumi Hrafn Kúld kylfingur ársins 2016
Aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar fór fram í gær og við það tilefni veitti klúbburinn viðurkenningar.

Tumi Hrafn Kúld kylfingur ársins 2016 hjá GA
Tumi Hrafn Kúld var valinn kylfingur ársins.
Tumi Hrafn gerði sér lítið fyrir og sigrað á Eimskipsmótaröð GSÍ í Vestmannaeyjum í september, eftir dramatískan bráðabana.
Er þetta fyrsti sigur GA félaga á mótaröð þeirra bestu hér á landi í ein 12-13 ár.
Hann lét ekki þar við sitja, heldur hafnaði í 7. sæti á lokamóti Eimskipsmótaraðarinnar, aðeins tveimur vikum síðar.
Tumi dvaldi í Bandaríkjunum við æfingar og keppni fyrri hluta sumars og uppskar þar m.a. 11. sæti í Wisconsin State Ameteur meistaramótinu. Tumi hefur verið duglegur að lækka forgjöfina sína í sumar og er kominn í 0,1 í forgjöf og verður væntanlega fljótur að koma forgjöfinni í plús á nýju ári. Þess má geta að Tumi hefur komist að munnlegu samkomulagi við Marquette háskólann í Bandaríkjunum og mun hefja nám þar haustið 2018.
Óskum við Tuma kærlega til hamingju með frábæran árangur og er það alveg ljóst að við í GA væntum mikils af þessum flotta kylfing á komandi árum.

Lárus Ingi Antonsson, GA (t.v.)
Við sama tækifæri hlaut Lárus Ingi Antonsson Háttvísibikarinn.
Lárus Ingi er ungur og efnilegur kylfingur sem sýnt hefur miklar framfarir undanfarin ár.
Hann sigrað m.a. á sínu fyrsta móti á Íslandsbankamótröð GSÍ á þessu ári í móti sem fram fór hjá Golfklúbbnum Keili.
Lárus hefur í senn náð að þróa leik sinn á mjög jákvæðan hátt og í leiðinni sýnt af sér góða háttvísi, heiðarleika og samviskusemi jafnt innan vallar sem utan.
Hann keppti m.a. annars á sínu fyrsta móti á Eimskipsmótaröðinni núna í haust og stóð sig með mikill prýði, þrátt fyrir að vera einungis 14 ára gamall. Lárus er einn af okkar allra efnilegustu kylfingum og verður það virkilega gaman að fylgjast með honum á komandi árum.
Jason Wright varð svo Holukeppnismeistari GA árið 2016.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
