Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Aron Snær Júlíusson – 29. nóvember 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Aron Snær Júlíusson, GKG. Aron Snær fæddist 29. nóvember 1996 og á því 20 ára stórafmæli í dag.

Hann spilar í bandaríska háskólagolfinu, með liði Louisiana Lafayette, The Ragin Cajuns og er búinn að standa sig vel á haustönn. Sjá má nýlegt viðtal við Aron Snæ sem landsliðsþjálfarinn okkar Úlfar Jónsson tók við hann SMELIÐ HÉR: 

Af einstökum afrekum Aron Snæs mætti sem dæmi nefna að hann varð klúbbmeistari GKG 2015 og sigraði í Einvíginu á Nesinu 2015;  hann setti vallarmet á Jaðrinum 2014 – 67 högg; hann varð stigameistari GSÍ á Íslandsbankamótaröðinni 2013 í piltaflokki tók m.a. þátt í Duke of York mótinu 2013 og sigraði í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ, árið 2012 og þá er fátt eitt talið.

Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Aron Snæ með því að SMELLA HÉR:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: K Snæfells Kjartansson, 29. nóvember 1954 (62 ára); Santiago Luna, 29. nóvember 1962 (54 ára); Perry Parker, 29. nóvember 1964 (52 ára);Rósa Guðbjartsdóttir, 29. nóvember 1965  (51 árs) Guy Hill, 29. nóvember 1970 (46 ára); Tonya Gill 29. nóvember 1970 (46 ára) og Danny Chia, 29. nóvember 1972 (44 ára); Ann-Kathrin Lindner, 29. nóvember 1987 (29 ára – spilar á LET)

….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is