Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jason Day og Tómas Ó. Malmberg – 12. nóvember 2016

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Jason Day, sem er sem stendur nr. 1 á heimslistanum og Tómas Ó Malmberg. Hann er fæddur 12. nóvember 1987 og er því 29 ára í dag!!!

Jason Day

Jason fæddist í Beaudesert í Ástralíu, en pabbi hans er ástralskur en mamma frá Filippseyjum. Hann gerðist atvinnumaður 2006 og hefir sigrað 15 sinnum á ferli sínum sem atvinnumaður; þar af 10 sinnum á PGA Tour. Þau mót sem hann hefir unnið á PGA Tour eru: Nationwide Tour: Legend Financial Group Classic 8. júlí 2007;PGA Tour: HP Byron Nelson mótið 23. maí 2010 og hin 9 mótin:

23. Feb 2014 WGC-Accenture Match Play Championship e. 23 holu viðureign við Victor Dubuisson
3 8 .Feb 2015 Farmers Insurance Open 73-65-71-70=279 −9 sigur e. bráðabana við Harris English, J. B. Holmes
og Scott Stallings, alla frá Bandaríkjunum
4 26. Jul 2015 RBC Canadian Open 68-66-69-68=271 −17 1 högg á Bubba Watson
5 16, Ágúst 2015 PGA Championship 68-67-66-67=268 −20 3 högg á Jordan Spieth
6 30. Ágúst 2015 The Barclays 68-68-63-62=261 −19 6 högg á Svíann Henrik Stenson
7 20. September 2015 BMW Championship 61-63-69-69=262 −22 6 högg á Bandaríkjamanninn Daniel Berger

8 20. Mars 2016 Arnold Palmer Invitational 66-65-70-70=271 −17 1 högg á Kevin Chappell
9 27. Mars 2016 WGC-Dell Match Play (2) 5 & 4 vann Louis Oosthuizen
10 15. Maí 2016 The Players Championship 63-66-73-71=273 4 högg á Kevin Chappell

Eftirtektarverðast er þó góð frammistaða hans á risamótum golfsins þar hefir hann landað 2. sætinu tvívegis þ.e. á Masters 2011 (T-2) og á Opna bandaríska 2011. Á sama tíma fyrir ári var Jason Day nr. 20 á lista yfir bestu kylfinga heims.

Jason er kvæntur Ellie Harvey, frá Lucas, Ohio og þau búa í Columbus, Ohio.

Tómas Ó. Malmberg er fæddur 12. nóvember 1966 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan

1-a-malm

Tómas Ó. Malmberg – 50 ára – Innilega til hamingju með hálfu öldina!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John Schroeder, 12. nóvember 1945 (71 árs); Delroy Cambridge, 12. nóvember 1949 (67 ára); Natalia Nim Chow, 12. nóvember 1962 (54 ára); Arnar Gauti Sverrisson, 12. nóvember 1971 (45 ára); Magnús Gauti Þrastarson, 12. nóvember 1971 (45  ára);  Lucas Glover, 12. nóvember 1979 (37 ára); Lacey Agnew, 12. nóvember 1987 (28 ára) ….. og …… Hljóðfæraverslunin Rín (74 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is