Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Gunnhildur Kristjánsdóttir – 9. nóvember 2016

Afmæliskylfingur dagsins er Gunnhildur Kristjánsdóttir. Gunnhildur er fædd 9. nóvember 1996 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Gunnhildur spilar í bandaríska háskólagolfinu með liði Elon en hér heima er hún í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Golflið Elon með afmælisbarnið í miðju

Golflið Elon með afmælisbarnið í miðju

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Gunnhildi til hamingju með merkisafmælið hér að neðan:

Gunnhildur Krisjánsdóttir, GKG

Gunnhildur Kristjánsdóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Aðalstræti Skammtíma Leiguíbúð Ísafirði (84 ára); Tom Weiskopf, 9. nóvember 1942 (74 ára); Signý Ólafsdóttir, 9. nóvember 1957 (59 ára) Karin Mundinger, 9. nóvember 1959 (57 ára); Stella Steingrímsdóttir, 9. nóvember 1965 (51 árs); David Duval, 9. nóvember 1971 (45 ára), Jónatan Már Sigurjónsson, GSG, 9. nóvember 1980 (36 ára); Gaby Lopez, (frá Mexíkó – spilar á LPGA) – 9. nóvember 1993 (23 ára); Sólon Baldvin Baldvinsson, GKG, 9. nóvember 1999 (17 ára) Zúzanna Korpak, GS, 9. nóvember 2000 (16 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is