Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2016 | 14:00

Hver er kylfingurinn: Beth Allen?

Beth Allen sigraði nú í dag í 3. sinn á Evrópumótaröð kvenna og var hún í sama ráshóp og eini íslenski kvenkylfingurinn, sem er að keppa á LET, sem stendur, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR.

Allen kom í hús á lokahring Fatima Bint Mubarak Ladies Open á stórglæsilegu skori 8 undir pari, 64 höggum!!!

Golfpenninn Matt Cooper skrifaði nú í sumar skemmtilega grein um Allen fyrir ESPN, sem bar fyrirsögnina: „Meet Beth Allen — the best American golfer you’ve never heard of“ (Lausleg ísl. þýðing: „Hittið Beth Allen – besta ameríska kylfinginn, sem þið hafið aldrei heyrt um.“  Sjá greinina með því að SMELLA HÉR: 

Jamms, það verður að segjast eins og er að það ber ekki mikið á Allen.  En hver er þessi geðþekki bandaríski kylfingur?

Bandaríski kylfingurinn Beth Allen . Mynd: Tristan Jones

Bandaríski kylfingurinn Beth Allen. Mynd: Tristan Jones

Komast má á heimasíðu Allen til þess að fræðast nánar um hana með því að SMELLA HÉR: 

Beth Allen fæddist í Ojai, Kaliforníu 6. desember 1981 og er því 34 ára.

Hún gerðist atvinnumaður í golfi 2005 eða fyrir 11 árum, þá 23 ára og hefir unnið sér inn $178,856 á ferli sínum. Sú upphæð hækkar væntanlega eitthvað eftir sigurinn í dag.

Besti árangur Allen í risamóti er T-14 árangur í  Opna breska kvenrisamótinu (ens. RICOH Women’s British Open).

Allen spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði California State University at Northridge.

Allen er 5´5 á hæð þ.e. u.þ.b. 1,65 m á hæð.

Í dag býr Allen í San Diego í Kaliforníu og er í Falkirk GC, þ.e.a.s. þegar hún er ekki að keppa á Evrópumótaröð kvenna (ens. LET) en þar hefir Allen keppnisrétt.

Beth Allen hefir sigrað 3 sinnum á LET: í fyrsta sinn í fyrra 2015 þegar hún sigraði á ISPS Handa Ladies European Masters mótinu, sem fram fór í Buckinghamshire golfklúbbnum í London. Allen vann 2. titil sinn nú í sumar 2016 á Lacoste Ladies Open. Og í dag, 5. nóvember 2016 er 3. titill hennar á LET í höfn eftir sigur á Fatimu Bint Mubarak Ladies Open í Abu Dhabi.

Allen er einstaklega ljúfur og góður kylfingur; hún komst m.a. í fréttirnar árið 2011 þ.e. fyrir 5 árum þegar hún gaf bróður sínum, Dan, nýra. Lesa má nánar um það með því að SMELLA HÉR: 

Allar kylfur Allen eru TaylorMade. Á pokanum hjá Allen er engin önnur en sænska golfstjarnan Sophie Gustafson og hefir hún hjálpað Allen mikið með leik sinn, fyrir utan hvað þær eru góðar vinkonur.