03/11/2016 Ladies European Tour 2016:
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2016 | 12:30

LET: Vonbrigði fyrir Ólafíu – lauk keppni í Abu Dhabi á 76 höggum!

Ólafía „okkar“ Þórunn Kristinsdóttir, GR, lauk keppni nú í þessu á LET-mótinu Fatima Bint Mubarak Ladies Open í 26. sæti.

Ólafía Þórunn átti afar slæman kafla á lokahring, mótsins þar sem hún m.a. fékk tvo skramba í röð í 14. og 15. holu. golfvallar Saadiyat Beach GC, en þar að auki fékk hún 2 fugla og 2 skolla á hringnum. –

Það var virkilega erfitt að horfa á vonbrigði Ólafíu á vellinum, en vonandi er bara bjartara framundan …. nóg af verkefnum til að takast á við – læra af þessu og halda áfram!!!  Hvað sem öðru líður getum við verið mjög stolt af frammistöðu Ólafíu – hún stóð sig eins og hetja og ekki slæmt að vera í topp-30 af þeim tæp 130, sem hófu keppni.

Samtals lék Ólafía Þórunn á 7 undir pari, 281 höggi (65 66 74 76).

Sigurvegari mótsins var í sama ráshóp og  Ólafía Þórunn á lokahringnum, en það var hin bandaríska Beth Allen.  Hún lék samtals á 21 undir pari, 267 höggum (66 68 69 64). Á lokahring sínum upp á 8 undir pari, 64 höggum jafnaði Allen mótsmetið. Ekki auðvelt fyrir Ólafíu að vera að spila með Allen þegar allt gekk á afturfótunum hjá henni og Allen átti einn besta hring sinn og tryggði sér 3. LET titil sinn. Sjá má eldri frétt Golf 1 um Allen, þegar hún vann sinn fyrsta sigur á LET í fyrra  með því að SMELLA HÉR: 

Jafnframt sigraði Allen á Lacoste Ladies Open í Frakklandi nú á þessu ári, 2016 og var það 2. titill hennar á LET.

Enska stúlkan Georgia Hall varð í 2. sæti á samtals 18 undir pari og Solheim Cup stjarnan enska Mel Reid og fyrrum dagatalsstúlkan frá Ástralíu Sarah Kemp deildu 3. sætinu á samtals 17 undir pari, hvor.   Ólafía var í ráshóp með bæði Hall og Reid í gær, á 3. keppnisdegi mótsins.

Sjá má lokastöðuna á Fatima Bint Mubarak Ladies Open með því að SMELLA HÉR:

Sjá má hápunkta 4. hring Fatima Bint Mubarak Ladies Open með því að SMELLA HÉR: (verður sett inn þegar myndskeiðið er til)