Rúnar Arnórsson, GK. Mynd: Minnesota háskóli
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2016 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Rúnar og Egill Ragnar hefja keppni í Hawaii í dag

Rúnar Arnórsson, GK og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, Minnesota State Egill Ragnar Gunnarsson, GKG  og Georgia State hefja leik á Ka’anapali Classic mótinu, á Maui, í Hawaíi í dag.

Keppt er á keppnisvelli  Ka’anapali GC og stendur mótið 4.-6. nóvember 2016.

Þetta er fremur stórt mót en keppendur eru 132 frá 24 háskólum.

Jafnframt er þetta síðasta mót Rúnars og Egils Ragnars á haustönn, en næstu mót liðanna eru ekki fyrr en á næsta ári, 2017.

Fylgjast má með gengi Íslendinganna með því að SMELLA HÉR: