Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2016 | 01:00

Bandaríska háskólagolfið: Aron varð T-6 í Hawaíi m/ magnaðan lokahring upp á 69!

Aron Snær Júlíusson, GKG og Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið þeirra, The Ragin Cajuns úr Louisiana Lafayette háskóla tóku þátt í Warrior Princeville Makai Inv. mótinu í Princeville, Hawaíi, sem lauk í gær.

Þetta var fremur stórt mót – þátttakendur voru 111 frá 19 háskólum.

Aron lauk keppni T-6 í þessu stóra móti, sem er stórglæsilegur árangur!!! Hann lék samtals á 7 undir pari, 209 höggum (73 67 69); átti m.a. frábæran lokahring upp á 3 undir pari þar sem hann fékk 5 fugla og 2 skolla.  Aron er svo sannarlega að stimpla sig inn í bandaríska háskólagolfið -en hann hóf nám og keppni í Bandaríkjunum nú í haust. Glæsileg byrjun!

Ragnar Már bætti sig líka frá 2. hring; lauk keppni T-67; lék samtals á  9 yfir pari, 225 höggum (71 81 73).

The Ragin Cajuns luku keppni í 10. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á Warrior Princeville Makai Inv. mótinu SMELLIÐ HÉR:

Næsta mót Arons Snæs og Ragnars Más og Ragin Cajuns er 20. febrúar 2017 í Mobile Alabama.