LET: Vonbrigði! Munaði svo litlu að Ólafía kæmist g. niðurskurð á Sanya Ladies Open!!!
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, komst ekki gegnum niðurskurð á Sanya Ladies Open, sem fram fer í Yalong Bay GC í Sanya í Kína.
Hún spilaði á samtals 5 yfir pari, 159 höggum (75 74) og munaði aðeins 1 höggi að hún kæmist í gegn!
Niðurskurður var miðaður við 4 yfir pari og betra.
Óhætt er að fullyrða að slæmur kafli á 10.-13. holu hafi gert út um vonir Ólafíu að spila um helgina, en hún fékk 4 skolla í röð og það er heilmikið sjokk, sem erfitt er að jafna sig á, á stuttum tíma!
Ólafía barðist þó eins og ljón, tókst að ná einu höggi aftur á par-4 14. holunni en paraði því miður síðustu 4 holurnar, þar sem hún HEFÐI átt að ná 1 fugli á.
En það þýðir ekki að vera með neina eftirsjá – þetta fer eins og svo margt annað bara í reynslubankann og það gengur bara betur næst!!!
Það eru hin franska Gwladys Nocera og heimakonan Yan Liu frá Kína, sem leiða á Sanya Ladies Open, á samtals 6 undir pari, hvor.
Til að sjá stöðuna á Sanya Ladies Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
