Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2016 | 08:00

LET Access: Berglind og Valdís Þóra keppa á lokamótinu!

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni og Berglind Björnsdóttir úr GR hefja leik í dag á lokamóti LET Access atvinnumótaraðarinnar.

Sjá nánari upplýsingar um mótið með því að SMELLA HÉR: 

Valdís Þóra er í 38. sæti á stigalista mótaraðarinnar en hún er á sínu þriðja tímabili á þessari atvinnumótaröð sem er sú næst sterkasta í Evrópu. Berglind Björnsdóttir fékk boð um að taka þátt en hún er Íslandsmeistari í holukeppni 2016 á Eimskipsmótaröðinni og var í landsliði Íslands á EM og HM á þessu ári.

Valdís Þóra hefur leikið á 10 mótum á þessu tímabili á LET Access mótaröðinni. Hún hefur komist í gegnum niðurskurðinn á fimm mótum og besti árangur hennar er 3ja sæti.

Það eru allar líkur á því að Valdís Þóra þurfi að leika á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina í Marokkó í desember á þessu ári. Tuttugu stigahæstu kylfingarnir á LET stigalistanum fara beint inn á lokaúrtökumótið. Valdís gæti með góðum árangri á lokamótinu á Spáni bætt stöðu sína á stigalistanum og komist í hóp 20 efstu.

Texti: GSÍ