Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2016 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Maude Aimee Leblanc (45/49)

Lokaúrtökumót LPGA, m.ö.o Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.

Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.

Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.

Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.

Alls hafa 44 stúlkur verið kynntar og nú er komið að þeim tveimur sem deildu 4. sætinu; Cynu Rodriguez frá Filipseyjum og Maude Aimee Leblanc frá Canada

Í dag verður Maude kynnt.

Maude Aimee Leblanc fæddist 14. febrúar 1989 og er því 27 ára.

Hún byrjaði að spila golf 5 ára.

Hún segir pabba sinn hafa verið þann aðila sem hafði mest áhrif á golfferil sinn.

Meðal áhugamála utan golfsins er að spila tennis, horfa á kvikmyndir, verja tíma með fjölskyldu og vinum og fara í vínsmakkanir.

Hún segir það að hafa leikið sér með ljónsunga í Suður-Afríku meðal þess svalasta sem hún hafi gert í lífi sínu. Hún komst á LPGA í fyrstu tilraun, árið 2011.