Nýju stúlkurnar á LPGA 2016: Megan Khang (44/49)
Lokaúrtökumót LPGA, m.ö.o Q-school LPGA fór fram 30. nóvember – 6. desember 2015.
Mótið fór venju skv. fram á LPGA International á Daytona Beach í Flórída.
Tuttugu stúlkur hlutu kortið sitt á LPGA í gegnum Q-school og þær sem urðu í 21. – 45 + þ.e., þær sem urðu í 21.-45. sæti eða jafnar í síðarnefnda sætinu hlutu takmarkaðan þátttökurétt í mótum LPGA.
Alls hlutu 49 stúlkur þátttökurétt á LPGA; 20 fullan þátttökurétt og 29 takmarkaðan.
Alls hafa 43 stúlkur verið kynntar og nú er komið að þeim tveimur sem deildu 6. sætinu; Cydney Clanton og Megan Khang.
Cydney Clanton hefir þegar verið kynnt og nú er komið að Megan Khang.

Megan Khang
Megan Khang fæddist 23. október 1997 og verður hún því 19 ára nú seinna í mánuðnum og var aðeins 18 ára þegar hún fékk kortið sitt á LPGA.
Khang býr í Rockland, Massachusets og fór í gegnum öll 3 stigin í úrtökumóti LPGA og má svo sannarlega segja að hún hafi unnið fyrir veru sinni á LPGA. Hún var í 2. sæti á I. stiginu; í 3. sæti á II. stiginu og síðan T-6 eins og komið hefir fram hér að framan í lokaúrtökumótinu.
Árið 2015 spilaði Khang í US Women´s Open risamótinu og var með lægsta skor áhugamanns þar (Varð T-35 með skor upp á 71-70-73-71 285 (5) ). Hún var einnig í liði Bandaríkjanna í Junior Solheim Cup.
Áður en Khang gerðist atvinnumaður fyrir lokaúrtökumótið 2015 var hún nr. 8 á heimslista áhugamanna. Hún hafði þar áður tekið þátt í unglingagolfmótum Golfsambands Bandaríkjanna (USGA) í 7 ár. Þess mætti geta að Khang tók þátt í úrtökumóti fyrir Kingsmill Championship árið 2015, komst í gegn og fór í gegnum niðurskurð í því risamóti og lauk keppni T-58 með skor upp á 72-70-68-75 285 (1). Ekki margar 18 ára stúlkur sem tekið hafa þátt og hvað þá sýnt svona stórglæsilegan árangur – – óreyndar að spila við alla bestu kvenkylfinga heims – – Glæsilegur framtíðarkylfingur á ferð þar sem Khang er!!!
Sjá má áhugaverða grein um Khang í Women´s Golf með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
