Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2016 | 09:00

Champions Tour: Daly T-7 á Toshiba e. 1. dag

John Daly, sem varð 50 ára í ár, tvöfaldur risamótsmeistari, hefir átt 3 topp-20 árangra á Öldungamótaröð PGA, Champions Tour; besti árangurinn var T-11 í júlí í New York á the Dick’s Sporting Goods Open.

Daly tekur þátt í móti vikunnar á Champions Tour, Toshiba Classic, nú um helgina.

Ég hef verið að slá ansi vel og tveggja vikna frí gerði mér gott,“ sagði Daly í gær, eftir 1. hring Toshiba Classic, sem er mót vikunnar á Champions Tour. „Öxlin á mér er enn ekki góð en ég get tekið fulla sveilfu. Ég strögla með 3/4 hluta högg, sem meikar ekki sens, en í hvert skipti sem ég reyni við eitt þeirra, er það sársaukafullt. En að taka fulla sveiflu er OK og til allrar hamingju var það það sem þurfti í dag.“

Toshiba Classic er 3 hringja mót og stendur 7.-9. október 2016.

Daly er sem stendur T-7, lék 1. hring á 67 glæsihöggum, en er samt 3 höggum á eftir þeim tveimur sem leiða mótið Jay Haas og Billy Mayfair, en þeir báðir léku á 64 höggum

Haas, sem sigraði í þessu móti 2007,  fékk fugl á síðustu holuna og jafnaði þar með við Mayfair, 64.

Ég hef alltaf spilað þennan völl vel,“ sagði Haas eftir hringinn í gær. „Ég tapaði árið á eftir (2008) í bráðabana gegn Bernhard [Langer], pg síðan næstu tvör árin, þá spilaði ég líklega eins vel og ég hef gert á öllum Champions Tour ferli mínum. … ég hef náð árangri hér og mér líkar við völlinn. Hann virðist settur upp þannig að mér hentar og mér líkar það sem ég sé.“

Colin Montgomerie lék á 68 höggum. Hann sigraði á móti fyrir 2 vikum í  British Columbia.

Bernhard Langer er í viku fríi. Hann er hins vegar efstur á peningalista öldungamótaraðarinnar og efstur á  Charles Schwab Cup stigalistanum.

Til þess að sjá stöðuna á Toshiba Classic SMELLIÐ HÉR: