Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2016 | 20:30

Úrtökumót f. Evróputúrinn: Góður árangur hjá íslensku kylfingunum 4 e. 1. dag

Fjórir íslenskir kylfingar hófu leik í dag á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. GR-ingarnir Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Andri Þór Björnsson og Haraldur Franklín Magnús leika allir á Frilford Heat vellinum á Englandi. Þetta er fyrsta tilraun þeirra við úrtökumótið.

Guðmundur Ágúst og Andri Þór byrjuðu glæsilega og eru báðir á topp 10 eftir fyrsta daginn en Haraldur Franklín er í 27.-32. sæti. Gera má ráð fyrir að um 20 kylfingar komist áfram af þessum velli inn á 2. stigið.

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG keppir á Ítalíu á 1. stigi úrtökumótsins en þetta er í 18. sinn sem Birgir Leifur reynir við úrtökumótið. Hann hefur tvívegis farið alla leið inn á Evrópumótaröðina og er eini íslenski karlkylfingurinn sem hefur náð þeim árangri. Birgir Leifur lék á 70 höggum í dag eða -2 og er hann í 15.-22. sæti eftir fyrsta hringinn.

Sjá má skorið á Frilford Heath á England með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má skorið á Bogogno á Ítalíu með því að SMELLA HÉR: