Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2016 | 18:00

Ólafur Björn T-12 e. 2. dag í Frakklandi

Ólafur Björn Loftsson, GKG, lék í dag 2. hring á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina, á Golf d´Hardelot í Frakklandi.

Ólafur lék 2. hring á 2 yfir pari, 73 höggum.

Á hringnum í dag fékk Ólafur Björn 2 fugla og 4 skolla.

Hann er nú samtals búinn að spila á 1 undir pari, 141 höggi (68 73) og er T-12.

24 og þeir sem jafnir eru í 24. sætinu komast áfram á 2. stig úrtökumótsins – Nú er bara að halda út!!!

Sjá má stöðuna í úrtökumótinu í d´Hardelot eftir 2. dag með því að SMELLA HÉR: