Ragnhildur Kristinsdóttir, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 18. 2016 | 15:30

Eimskipsmótaröðin 2016-2017 (2): Ragnhildur sigraði í kvennaflokki á Honda Classic

Ragnhildur Kristinsdóttir, afrekskylfingur úr GR sigraði á 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar, keppnistímabilið 2016-2017, Honda Classic, sem fram hefir farið á Garðavelli á Akranesi 16.-18. september 2016.

Ragnhildur lék hringina 3 á 13 yfir pari, 229 höggum (77 71 81).

Hún átti 8 högg á næsta keppanda, þannig að sigurinn hjá Ragnhildi var nokkuð öruggur.

Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK, varð í 2. sæti og Eva Karen Björnsdóttir, GR í 3. sæti.

Lokastaðan í kvennaflokki á Honda Classic var eftirfarandi: 

1 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 1 F 43 38 81 9 77 71 81 229 13
2 Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 5 F 44 39 83 11 80 74 83 237 21
3 Eva Karen Björnsdóttir GR 6 F 42 40 82 10 82 81 82 245 29
4 Anna Sólveig Snorradóttir GK 4 F 38 41 79 7 82 87 79 248 32
5 Halla Björk Ragnarsdóttir GR 5 F 38 42 80 8 83 85 80 248 32
6 Andrea Ýr Ásmundsdóttir GA 6 F 40 38 78 6 91 80 78 249 33