Ragnheiður Jónsdóttir | september. 12. 2016 | 06:45

Íslandsbankamótaröðin 2016 (6): Jóhannes Guðmundsson sigraði í piltaflokki

Lokamót Íslandsbankamótaraðarinnar fór fram á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili 9.-11. september 2016 og lauk því í gær.

Spennandi keppni var í öllum flokkum en að venju var keppt í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum.

Í flokki 17-18 ára voru leiknar 54 holur og voru aðstæður á fyrsta keppnisdeginum á föstudeginum mjög krefjandi á frábærum Hvaleyrarvelli.

Veðrið lék við keppendur á laugardag og sunnudag en alls luku 110 keppendur leik.

Í piltaflokki sigraði Jóhannes Guðmundsson, GR, eftir bráðabana við Daníel Inga Sigurjónsson, GV.  Báðir voru á 10 yfir pari, eftir hefðbundinn 54 holu leik og því varð að koma til brábana þar sem Jóhannes sigraði þegar á fyrstu holu.

Úrslit í 6. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2016 í flokki 17-18 ára pilta:

Jóhannes Guðmundsson, GR (79-74-70) 223 högg +10
Daníel Ingi Sigurjónsson, GV (76-76-71) 223 högg +10
*Jóhannes sigraði á 1. holu í bráðabana.

Andri Páll Ásgeirsson., GK (82-69-75) 226 högg +13
Lárus Garðar Long, GV (80-73-75) 228 högg +15
Aron Skúli Ingason, GM (80-73-78 ) 231 högg +18
Sigurður Már Þórhallsson, GR (81-75-76) 232 högg +19
Stefán Einar Sigmundsson , GA (80-81-73) 234 högg +21
Sindri Þór Jónsson, GR (82-79-74) 235 högg +22
Axel Fannar Elvarsson, GL (81-79-76) 236 högg +23
Helgi Snær Björgvinsson, GK (76-82-79) 237 högg +24