Ragnheiður Jónsdóttir | september. 10. 2016 | 07:45

Westy sigurvegari The Hickory Golf Challenge

Lee Westwood stóð uppi sem sigurvegari í nokkuð sérstakri golfkeppni sem fram fór á Crans sur Sierre, í Crans Montana Sviss um síðustu helgi á Omega European Masters mótinu.

Mót þetta nefnist „The Hickory Golf Challenge“ og þar kepptu 4 kylfingar innbyrðis að þessu sinni, en með þessari keppni átti að minnast þess að 70 ár eru síðan að fyrst var keppt á European Masters í Crans Montana, sem gerir mótið að því elsta á Evrópumótaröðinni sem haldið hefir verið á sama stað í Evrópu.

Þeir  4 kylfingar sem kepptu að þessu sinni voru: Paolo Quirici, Danny Willett, Lee Westwood og Miguel Ángel Jiménez.

Þeir íklæddust golfklæðnaði sem notaður var fyrir 70 árum í tilefni dagsins og þess tíma kylfur – en spilaðar voru 10. og 18. holurnar.

Sjá má myndskeið af keppninni með því að SMELLA HÉR: 

Það var Westy (Lee Westwood) sem stóð uppi sem sigurvegari og hlaut að launum vegleg verðlaun, eins og sjá má í myndskeiðinu.