Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2016 | 16:15

Rory segir frá lítilsháttar púttbreytingu sinni sem leiddi til sigurs á Deutsche Bank

Það er ótrúlegt í þessum leik (golfinu) hversu hratt hlutirnir breytast,“ sagði Rory McIlroy, sem reyndi að útskýra hvernig martraðarbyrjun í ársbyrjun snerist í sigur þ.e. fyrsta sigur hans í 16 mánuði.

McIlroy fékk 7 fugla í frábærum 65 högga leik sínum á mánudag þegar hann sigraði á Deutsche Bank Open og átti m.a. 2 högg á Paul Casey.

Hann vann sér inn  $1.53 milljónir, sem virtist óhugsandi eftir horror byrjun þar sem hann missti 4 högg á fyrstu 3 holunum á TPC Boston.

Það var margt sem fór um huga minn (á föstudaginn,“ viðurkenndi Rory „en eitt af því var ekki að sigra í þessu móti.“

Þannig að 69 holum seinna – spilaði ég frábært golf og setti niður nokkur góð pútt. Ég er virkilega stoltur af sjálfum mér, hvernig ég hékk inna fyrsta daginn og náði síðan ákveðnu flugi á laugardaginn. Ég bara lét þetta verða.

Það er frábært að ná sínum fyrsta sigri í Bandaríkjunum á þessu ári og vonandi get ég tekið þessa hraðskreiðu breytingu til hins betra með mér næstu vikurnar og í Ryderinn.“

F.v. nr. 5 á heimslistanum (núverandi nr. 3) undirstrikað „að mjög auðvelt fix“ á púttflötinni á laugardaginn hefði verið lykillinn að velgengninni.

Ég staðsetti höndina aðeins ofar á gripið í staðinn fyrir að vera til hliðar en það hjálpaði til við að púttersflötin var meira square gegnum púttstrokua og boltinn var meira í þeirri línu sem hann átti að vera í og það hjálpaði mér mikið.“