Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2016 | 08:00

Þórður Rafn lauk keppni í Tékklandi í 16. sæti!

Þórður Rafn Gissurarson, atvinnukylfingur úr GR, hafnaði í 16. sæti á atvinnumóti sem fram fór í Tékklandi, Beroun Czech Open og lauk sunnudaginn 4. september 2016.

Þórður lék hringina fjóra á 291 höggi eða 9 höggum yfir pari vallar (75-74-72-70).

Hann bætti sig alla fjóra keppnisdagana og endaði eins og áður segir í 16. sæti.

Siguvegarinn lék á 282 höggum eða sex höggum undir pari.

Sjá má lokastöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: