Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2016 | 15:00

Eimskipsmótaröðin 2016 (7): Berglind eykur forskot sitt á 2. degi Nýherjamótsins!!!

Það er Berglind Björnsdóttir, GR sem leiðir á 7. og síðasta móti ársins á Eimskipsmótaröðinni.

Leikið var við þokkalegar aðstæður á Vestmannaeyjavelli – þótt Vestmannaeyjahlaupið hafi verið á sama tíma með tilheyrandi fagnaði og sprengjum í bænum, sem trufluðu aðeins.

Berglind er búin að spila frábært golf er á 7 yfir pari, 147 höggum (73 74).

Saga Traustadóttir er í 2. sæti á 13 yfir pari – Í gær hafði Berglind 4 högga forystu á þá sem næst vr nú er hún búin að auka forskotið í 6 högg.

Sjá má stöðuna eftir 2. dag í kvennaflokki á Eimskipsmótaröðinni hér að neðan:

1 Berglind Björnsdóttir GR 4 F 36 38 74 4 73 74 147 7
2 Saga Traustadóttir GR 3 F 38 38 76 6 77 76 153 13
3 Anna Sólveig Snorradóttir GK 4 F 36 38 74 4 81 74 155 15
4 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 3 F 36 39 75 5 80 75 155 15
5 Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 6 F 39 42 81 11 78 81 159 19
6 Kristín María Þorsteinsdóttir GM 10 F 40 44 84 14 84 84 168 28