Challenge Tour: Birgir Leifur lauk keppni T-29
Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á lokahringnum á Bridgestone mótinu sem lauk í dag, 28. ágúst 2016, á Englandi. Mótið var hluti af næst sterkustu mótaröð Evrópu í karlaflokki. Birgir lék lokahringinn á +2 en hann var í 8. sæti fyrir lokahringinn á -11 samtals.
Birgir Leifur lék á samtals 9 undir pari, 279 höggum (67 73 65 74) og lauk keppni T-29 þ.e. jafn öðrum í 29. sæti.
Belginn Thomas Detry lék magnað golf en hann sigraði á -29 samtals og var hann 12 höggum á undan næsta manni. Ivó Giner er sá eini sem hefur afrekað að leika á -29 á fjórum keppnisdögum á Áskorendamótaröðinni en það gerði hann árið 2003.
Mótið sem Íslandsmeistarinn úr GKG keppir á fór fram á Heythrop Park Resort við Oxford.
Lokastöðuna á Bridgestone Challenge mótinu má sjá með því að SMELLA HÉR:
Þetta er sjötta mótið hjá Birgi á þessari leiktíð á Áskorendamótaröðinni. Besti árangur hans var í byrjun ágúst þegar hann endaði í sjötta sæti á móti í Svíþjóð. Alls hefur hann komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur mótum af alls fimm.
Birgir hefur unnið sér inn rúmlega 7.000 Evrur á þeim tveimur mótum sem hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn. Á fyrra mótinu endaði hann í 29. sæti og fékk um 200.000 kr. Hann fékk um 730.000 kr. fyrir sjötta sætið á mótinu í Svíþjóð.
Birgir var í 113. sæti stigalistans á Áskorendamótaröðinni fyrir mótið á Englandi en hann er í því 108. eftir þetta mót.
Texti: GSÍ (seth@golf.is)
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
