Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2016 | 17:00

3 GSFÍ kylfingar keppa í Kalmar

Þrír íslenskir kylfingar úr röðum Golfsamtaka fatlaðra á Íslandi (GSFÍ) verða á meðal keppenda á Opna sænska meistaramótinu í golfi sem fram fer um næstu helgi.

Keppt verður á glæsilegum keppnisvelli í borginni Kalmar og stendur keppnin yfir í tvo daga.

Sveinbjörn Guðmundsson, Elín Fanney Ólafsdóttir og Þóra María Fransdóttir verða fulltrúar Íslands á þessu móti.

Minningarsjóður Harðar Barðdal styður við bakið á keppendunum í þessu verkefni og fær hver kylfingur 75.000 kr. í styrk úr sjóðnum.

Sjá má myndskeið af keppnisvellinum í Kalmar hér að neðan: