Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 5. 2016 | 20:20

Rúnar með vallarmet á EM einstaklinga og eini Íslendingurinn sem náði niðurskurði

Rúnar Arnórsson úr Golfklúbbnum Keili jafnaði vallarmet í dag og komst í gegnum niðurskurðinn á Evrópumóti einstaklinga sem fram fer í Eistlandi.

Keilismaðurinn lék á 8 höggum undir pari vallar eða 64 höggum og er hann í 25. sæti fyrir lokahringinn.

Rúnar var sá eini af alls fimm íslenskum keppendum sem komst í gegnum niðurskurðinn.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR og Gísli Sveinbergsson úr GK voru einu höggi frá því að komast áfram en þeir léku báðir á einu höggi yfir pari vallar samtals.

Andri Þór Björnsson úr GR lék á +3 samtals og Haraldur Franklín Magnús úr GR lék á +7.

Sjá má stöðuna á EM einstaklinga með því að SMELLA HÉR:

Heimild: GSÍ