Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 5. 2016 | 18:10

Góður árangur eldri kylfinga!!! – Ísland T-7 án fgj. – Ísland í 11. sæti m/fgj.

Nú er lokið Evrópukeppni eldri kylfinga sem fram fór í Sandefjord og Larvik í Noregi 2.- 4. ágúst. Landslið Íslands án forgjafar endaði í 7- 8. sæti ásamt Spánverjum á 965 höggum eftir þrjá daga. Ítalía fagnaði Evrópumeistaratitlinum á 906 höggum samtals.

Af Norðurlandaþjóðunum var það bara Finnland sem var fyrir ofan Ísland.

Forgjafarliðið endaði í 11. sæti eftir ágætis árangur á síðasta degi.

Umgjörð og framkvæmd Norðmanna var til fyrirmyndar og landsliðsmenn ánægðir með móttökurnar og koma sælir heim.

Lið Íslands í forgjafarkeppninni var þannig skipað: Ásbjörn Björgvinsson, Jónas Tryggvason, Guðlaugur Kristinsson, Þorsteinn Þórisson, Júlíus Júlíusson, Helgi Ingason.

Lið Íslands án forgjafar var þannig skipað: Gauti Grétarsson, Snorri Hjaltason, Hörður Sigurðsson, Gunnar Þórisson, Sæmundur Pálsson, Sigurður Aðalsteinsson.

Forgjafarúrslitin má nálgast með því að SMELLA HÉR:

Úrslit án forgjafar má nálgast með því að SMELLA HÉR: