Oddur Óli sigraði í Einvíginu á Nesinu 2016!
Einvígið á Nesinu – Shoot out fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri mánudaginn 1. ágúst. Þetta var í 20. skiptið sem mótið er haldið og eins og ávallt til styrktar góðu málefni. Það var heimamaðurinn Oddur Óli Jónasson, klúbbmeistari Nesklúbbsins 2016, sem stóð uppi sem sigurvegari í Einvíginu á Nesinu 2016 og er þetta í fyrsta sinns sem hann sigrar á þessu móti.
Venju samkvæmt léku þeir kylfingar sem boðið var í mótið 9 holu höggleik í morgun. þar lék Aron Snær Júlíusson best allra eða á 31 höggi eða á fimm höggum undir pari vallarins. Næstir komu svo þeir Úlfar Jónsson á 32 höggum og Oddur Óli Jónasson á 33 höggum.
Eftir hádegið hófst svo Einvígið sjálft þar sem einn keppandi dettur út á hverri holu þar til tveir berjast um sigurinn á 9. holu. Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir þátttökuna. Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og afhenti Atli Einarsson, framkvæmdastjóri DHL á Íslandi Hákoni Hákonarsyni frá Umhyggju ávísun upp á eina milljón króna en Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra.

Þátttakendur Einvígisins á Nesinu 2016 – Umhyggja naut góðs af að þessu sinni!
Úrslit í einvíginu urðu eftirfarandi:
1. sæti – Oddur Óli Jónasson, NK
2. sæti – Aron Snær Júlíusson, GKG
3. sæti – Björgvin Sigurbergsson, GK
4. sæti – Úlfar Jónsson, GKG
5. sæti – Kristján Þór Einarsson, GM
6. sæti – Hlynur Geir Hjartarson, GOS
7. sæti – Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR
8. sæti – Karlotta Einarsdóttir, NK
9. sæti – Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG
10. sæti – Ragnhildur Sigurðardóttir, GR
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
